|
Símanúmer
+354 824 2778 |
||
|
MEÐ ORÐ AÐ VOPNI Harla hóf starfsemi á Akureyri 3. janúar 2005. Stofnandi og eini fasti starfsmaðurinn er Haraldur Ingólfsson. Hann fæddist í Stykkishólmi 28. júní 1963 og ólst upp í Straumfjarðartungu í Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi. Haraldur hefur margra ára reynslu af því að lesa og skrifa. Hann starfaði sem lausamaður hjá Íþróttablaðinu 1992-1993, prófarkalesari og blaðamaður á Degi 1997-2000, fréttamaður/fréttastjóri á sjónvarpsstöðinni Aksjón á Akureyri 2000-2001, síðan útvarpsmaður í hlutastarfi í nokkra mánuði á Ljósvakanum og frá 2002-2004 starfaði hann við fjölbreytt texta- og kynningarverkefni hjá kynningarþjónustu á Akureyri. Haraldur lauk grunnskólaprófi frá Laugagerðisskóla á Snæfellsnesi 1979, verslunarprófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst 1982, stúdentsprófi frá Samvinnuskólanum 1985 (framhaldsdeild skólans í Reykjavík) og B.A.-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands 1996. Lokaritgerð Haralds til B.A.-prófs fjallaði um heimspeki Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi eins og hún birtist í bókinni Saga hugsunar minnar um sjálfan mig og tilveruna (1912). Að útskrift lokinni sá Haraldur um endurútgáfu ritsins í samstarfi við Heimspekistofnun og Hið íslenska bókmenntafélag og nýtti þá ritgerðina sem stofn að inngangi að ritinu. Haraldur er í sambúð með Jóhönnu Harðardóttur, Bowen tækni, TFT-sérfræðingi, höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara og hjúkrunarfræðingi. Upplýsingar um starf Jóhönnu er að finna á vef hennar, www.heilsubot.com. Jóhanna og Haraldur eiga saman þrjú börn, Tinnu (1990), Sólrúnu Sesselju (1996) og Hörð Tryggva (1999) en Jóhanna á einnig eldri son, Emil (1982). |
Harla
Við... eða ég... |
|
|
|
|
|